þriðjudagur, mars 30, 2004

The Passion of the Christ

Úff, var að panta miða á Jesúmyndina hans Mel Gibsons. Hreinlega get ekki beðið eftir að sjá hana, sérstaklega eftir allt sem ég hef heyrt um hana. Hef samt passað mig á því að heyra ekki of mikið, ekki gott með svona bíómyndir. Lítil leynileg ástríða hjá mér að horfa á Jesúmyndir, sakna þeirra núna um páskana. Já, þrátt fyrir trúleysið þá þýðir það ekki að maður geti ekki haft áhuga á trúmálum. Ah mynnist samtals á fótboltaæfingu í USA fyrir nokkrum árum:

Stelpa í fótboltanum: What do you believe?
Ég: I am an athiest.
Stelpa í fótboltanum: What is that?


Held að þetta sé meira segjandi um Wisconsin heldur en margt annað;)

mánudagur, mars 29, 2004

Flundur

Góðan daginn allir saman. Þetta virðist vera komið í sama rassfarið hjá mér: Skrifa langa færslu og láta síðan ekkert frá mér heyra í langan langan langan (you get the point) tíma. En margt hefur gerst á síðustu dögum. Sumt gott annað ekki svo frábært.

Til að byrja með eyddi ég laugardeginum í sölumennsku. Einu sinni á ári í Hong Kong er haldið RISAstórt rúgbýmót hér í bæ. Hingað koma öll bestu landsliðin í heiminum og keppa í þessari stórhættulegu íþrótt sem byggist á því að RISAstórir menn hlaupa á hvern annan. Svona eins og amerískur fótbolti nema bara án púðanna utan um líkaman og er miklu ofbeldisfyllra. Anyway, ég skráði mig í að selja bökur og hélt í fúlustu alvöru að ég gæti fengið einhvern pening út úr þessu. I was wrong. Fyrir um 12 tíma vinnu fékk ég um 2500 krónur í comission. Needless to say þá hreinlega mætti ég ekki til vinnu á sunnudaginn. Það var svo sem í góðu lagi þar sem okkur var sagt að það væri okkar val. Í staðinn svaf Sigríður Jónsdóttir í 13 yndislega tíma. Hef ekki sofið út í MARGA mánuði, eða síðan á jólum. Það var kominn tími til. En það var samt mjög gaman á laugardaginn. Virkilega gaman að sjá og upplifa þetta allt saman en hefði verið miklu skemmtilegra ef að ég hefði verið meðal áhorfanda.

Mér var reyndar skemmt að sjá að áhorfendur voru að mestu útlendingar, nánar til tekið fólk frá Stóra Bretlandi sem sagt Englandi og Skotlandi. Hinn helmingurinn voru Ástralar. Mikil karnivalstemmig var í fólki og ófáir mættu í grímubúningum s.s. í bolum með gerfibrjóstum, fólk klætt eins og flassarar eða annað álíka smekklegt. Og þvílík drykkja var á fólki, þetta var eins og á þjóðhátið. Bjórinn hreinlega flæddi um gangana, bókstaflega. Þegar dagurinn var búin var hægt að skauta á göngunum vegna bjórs sem hafði skvetts út um all. Því miður var okkur ekki leyft að teiga af þessum guðaveigum þannig að við vorum bláedrú og blönk eftir daginn.

Sunnudaginum var síðan eytt í svefn, lærdóm og leti sem var alveg yndislegt. Mjög svipað hafði gerst í vikunni sem leið. Skrapp í bíó, fór út að borða í hádegismat með Nils, út að borða með umsjónahópnum mínum. Sama verður upp á teningnum þessa vikuna þar sem ég er að fara út með Caitlin frá Írlandi á morgun svona til að spjalla um Oxford, við komust báðar inn. Fer síðan á fimmtudeginum með Héctor frá Spáni á The Passion of the Christ sem verður örugglega stórkostlega gaman.

Talandi um að komast inn í skóla. Nemendurnir í skólanum eru byrjaðir að fá svör frá USA í sambandi við háskóla og allt er að fara á annan endan. Héctor komst inn á fullum styrk til Skidmore sem er í New York fylki þannig að hann endar örugglega með því að fara þangað. Ég er more or less búin að ákveða að halda á Englandsslóðir næsta haust þannig að ég er bara nokkuð róleg yfir þessu öllu saman. Er reyndar búin að komast inn í Richmond með 10000 dollara í styrk þrátt fyrri að ég kláraði ekki umsóknina mína þangað sem ég tel vera nokkuð fyndið. Fékk síðan bréf frá Colby í dag þar sem þau buðu mér pláss en er ekki búin að heyra frá þeim í sambandi við peninga, vonandi geri ég það síðar. Er samt gaman að komast inn í svona dæmi. Var ein af minna en 300 sem komst inn af um 4000 nemendum. Smá stollt. En eins og ég segji það er nokkuð víst að ég taki áhættuna með Oxford og sé til hvort að ég komist alveg. Það fæ ég ekki að vita fyrr en í júni, vesen er á allri þessari við. Alltaf að bíða....

fimmtudagur, mars 25, 2004

og enn fleiri myndir...

Búin að bæta við fleiri myndum á myndasíðuna mína. Þetta er frá UCW göngunni á síðasta laugardegi.

fimmtudagur, mars 18, 2004

Einn dagur

Átti eina af þessum nóttum þar sem ég vaknaði á klukkutíma fresti og hélt að ég væri að verða of sein í tíma. Vaknaði síðan akkúrat klukkan 7:25 sem gaf mér fimm mín í að koma mér í tíma. Gjörsamlega nennti því ekki og ákvað að verða 15 of sein sem að ég held hafi bjargað deginum. Átti að vera í leiklist og það kom í ljós að Maurice, leiklistarkennarinn, hafði eitt þessum mín í að nöldra þannig að ég tel þetta hafa verið góða ákvörðun.

Mikið drama er nú í gangi í skólanum. Á laugardaginn var planað að fara í UWC göngu þar sem við auglýsum skólann og það sem hann stendur fyrir. Hérna í Hong Kong verður að fá leyfi fyrir svoleiðis sem var reddað. En í þessari viku vorum við látin vita að stjórn skólans hefur bannað okkur að ganga í miðbæ Hong Kong því að það sýni skólann í vitlausu ljósi. Ég varð svo reið þegar ég heyrði þetta. Typical fyrir stjórn skólans. Hún samanstendur af bisnessfólki, ja mönnun, héðan úr borginni og einni nunni (sem sögð er vera líberalískasta manneskjan í stjórinni). Hef séð þetta fólk einu sinni. Er alls ekki sátt með hvernig þetta hefur farið fram innan skóla sem á að standa fyrir réttlæti og lýðræði. Veit ekki alveg hvað verður úr þessu en það er fundur í kvöld.

Ah, ætla síðan að skella mér niður í "Sunshine" og fá mér gott að borða, jah, McDonalds en miðað við valið í matsalnum í dag þá er það 4 stjörnu máltíð.

þriðjudagur, mars 16, 2004

Myndir

Ég á bara ekki til eitt aukatekið orð yfir dugnaðinum í mér. Ekki einungis tókst mér að fara í dag og framkalla myndir (sem ég bíð oftast með í nokkra mánuði eftir að filman er búin) heldur er ég búin að opna myndaalbúm á netinu, sjá hlekkinn sem heitir myndir (duh). Úff held bara að ég verði að taka mér helgarfrí út á þetta.....
Seamus Heaney

Poor Women in a City Church

The small wax candles melt to light,
Flicker in marble, reflect bright
Asterisks on brass candlesticks:
At the Virgin's altar on the right
Blue flames are jerking on wicks.


Það er opinbert, ekki sé minnst á algjör snilld, ég og Harpa erum að fara á ljóðalestur með Seamus Heaney daginn eftir að ég kem heim. Ef að það er ekki eitthvað til að hlakka til þá veit ég ekki hvað. Ekki á hverjum degi sem nóbelsskáld koma til Íslands.

mánudagur, mars 15, 2004

Janus

Stress, gleði, rafmagnsleysi, Tom Waits, Vincent van der Valk og þreyta. Þetta er búin að vera fáránlegur dagur en ótrúlega góður, jafnframt þreytandi. Já, ég er búin að sýna leikritið mitt. Fólkið tók því rosalega vel sem er frábært. Var, að mörgu leiti, skrifað sem gagnrýni á Li Po Chun og hræsnina sem leynist í mörgum skúmaskotum hérna. Get varla talað um þetta ennþá.. er ekki með sjálfri mér... verð að tala við fólk um þetta fyrst.... en þessu er lokið....

sunnudagur, mars 14, 2004

Oj

Það eru ekki til annað eða betra orð til að lýsa þessu. Bara hreint út sagt: Oj.
It's alive!

Það er opinbert: Ég er á lífi. Nei, ég hef ekki horfið niður í undragrundir (lesist sem underground) Hong Kong heldur hef ég týnst í leiklist síðustu vikuna. Þannig er nefnilega mál í vexti að ekki einungis var þetta vikan þar sem við fengum prófin til baka heldur var þetta vikan þar sem öll leiklistarverkefnin þurfti að vera skilað inn. Á síðstu dögunum hef ég skrifað um 7000 orð takk fyrir púnktur. Ef að þetta er ekki nóg þá hef ég líka verið að setja á svið leikrit sem ég er að leikstýra, og sem ég skrifaði. Sýningin er á morgun þannig að þetta passaði sko aldeilis vel saman, oj. Átti reyndar að sýna á fimmtudaginn í síðustu viku en leikarinn (jamm bara einn leikari), Vincent, varð veikur daginn fyrir sýningu þannig að henni varð að fresta. Leikritið heitir Janus og fjallar um nemanda sem er búin að fá nóg, kannast einhver við þetta. Veit ekki alveg hvernig þessu verður tekið en þetta er eitthvað sem mér og Vincent hefur langað til að segja lengi. Eyddi um fimm tímum í þetta í dag. Þetta er bara svo gaman. Það eru bara öll verkefnin sem eru pain. Held að ég sé komin með kassaaugu, er búin að stara svo mikið í tölvuna. Átti að skila á föstudaginn en tókst ekki að skila fyrr en í dag, það reddaðist alveg. Fékk samt alveg nóg í gær og hvarf með Nils niður í þorp um 20 mín frá skólanum og fengum okkur indverskan mat í laugardagshádegis mat, algjör snilld.

Talandi um snilld. Nú er meira en vika síðan ég kom heim frá SOS þorpinu á Filippseyjunum. En eins og hægt er að lesa frá síðasta bloggi þá var þetta svo gaman að það síðasta sem ég vildi gera var að fara aftur til LPC. Á hverjum degi var eitthvað nýtt að ske, nýjir krakkar að tala við og einhver upplifun. Það var reyndar ekki gert mikið þannig séð. Við lékum við börnin, spiluðum blak og á kvöldin voru oft einhverjar uppákomur s.s. kvöld þar sem við kynntum löndin okkar. Svo gaman að gera svona fyrir aðra. Allir eru svo þakklátir fyrir eitthvað svona rosalega lítið. Vil bara benda á það að mér tókst að setja nýtt persónulegt met. Ég, Nils og Trulya (Hong Kong stelpa) settum á svið lítinn leikþátt byggðan á norsku ævintýri þar sem ég leik ekki einn karakter, ekki tvo heldur fimm! Pabban, mömmuna, stóru bræðurna tvo og tröllið (auðvitað). Þvílík áreynsla. Þið getið ímyndað ykkur að fyrir hvern karakter þurfti ég smá búining. Lausnin á því var að hlaða á mig fötum sem ég gat bara farið úr og hoppað aftur á svið. Vil ég nú benda á þá staðreynd að ég var á Filippseyjunum þar sem er alltof heitt á kvöldin þannig að ég var gjörsamlega að kafna. Fannst okkur líka það vera sniðug hugmynd að ég myndi skella í mig "smá" hárgeli til þess að gera tröllið aðeins skemmtilegra. Smá var um hálf dolla, ekki beint geðslegt.

En þetta var ekki bara fjör og gaman. Við unnum líka verkefni, á morgnana þegar krakkarnir voru í skólanum. Verkefnið snérist um það að við sem hópur áttum að hanna tómstundaherbergi fyrir börnin. SOS þorpinu hafði áskotnanst pengingur fyrir þetta herbergi en fannst það vera tilvalið að sjá hvað við sáum út úr þessu herbergi. Í raun var ég hreinlega að hanna draumaherbergi fyrir mig þegar ég var krakki: Mikið af bókum, tölvum og bíómyndum. Nokkrir klukkutímar fóru í þetta, sem voru dreyfðir á nokkra daga. Í lokin var hönnunin okkar kynnt fyrir yfirmönnum þorpsins og kennurunum þar. Ég tók að mér að kynna þetta. Í lokin komu þau persónulega til mín og þökkuðu mér innilega fyrir, þau hrósuðu mér í bak og fyrir og áttu ekki til orð yfir þessu öllu saman. Svo gaman að fá svona hrós, sérstaklega ef að við getum gert eitthvað fyrir börnin líka.

Auðvitað snérist þetta mest um krakkana. Um 80 börn voru á svæðinu í 10 húsum. Ein "mamma" sér um hvert hús og síðan eru "frænkur" sem aðstoða. Við fórum í heimsókn til SOS þorps sem er fyrir utan Manila og þar hitti ég konu sem hafði alið upp um 30 börn og átti nú úm 20 barnabörn. Alveg ótrúlegt. Það sem er sérstakt við Manila er að börnin eru ekki bara munaðarleysingjar heldur líka börn sem hafa verið tekin frá foreldrum sínum af mörgum mismunandi ástæðum s.s. misnotkun. Það var einstakt að sjá hvað þau voru alltaf glöð, gáfu manni litlar gjafi og töluðu við mig eins og ekkert væri. Heyrði nokkrar hryllilegar sögur frá fólkinu sem vann þarna sem ég ætla ekki einu sinni að endurtaka.

Það var hrikalegt að kveðja: 40 börn grátandi. Síðasta kvöldið eyddi ég með litlum átta ára dreng sem heitir Ephrem. Spjölluðum um daginn og veginn í rólegheitunum eins og mér finnst best. En þegar ég átti að fara vildi hann ekki sleppa mér. Hörmulegt að þurfa að kveða svona sérstakt barn og horfa á eftir því í gegnum bílrúðuna ekki vitandi hvort að ég mun einhver tímann sjá hann aftur. En ég tók haug af myndum (sem auðvitað á enn eftir að framkalla) þannig að ég get vonandi sýnt ykkur eitthvað af þessu fólki.

Svona eitt að lokum (ef að þið hafði lesið svona langt getið þið lesið aðeins meira). Eitt það versta við það að vera í þessum skóla er ef að eitthvað gerist út í heimi er góður möguleiki að ég þekki fólk frá því landi. Hef sjaldan orðið svo hrædd eins og þegar sprengjurnar sprungu í Madrid á Spáni. Það fyrsta sem ég hugsaði var hvort að fjölskylda og vinir hans Hectors, góðs vinar míns, væru heil á húfi. Auðvitað var hann í sjokki og eyddi tímanum sínum í símanum þannig að ég hitti hann ekki fyrr en miklu seinna. Það er ekki hægt að lýsa tilfinningunni að sitja við tölvuna og vita ekki hvort að ættingjar vinar þíns hafi verið sprengdir í loft upp. Hann býr í borg sem er í um klukkutíma fjarlægð frá Madrid. Sem betur fer er allt í lagi með alla hjá honum, að því sem ég best veit. Talaði við hann fljótlega. Kemur samt í ljós að tvær af lestunum sem voru sprengar í loft upp voru að koma frá borginni hans þannig að sprengjurnar voru settar í þar. Hann var virkilega hræddur því að amma hans tekur eina af þessum lestum á hverjum degi en hún hafði farið fyrr um daginn, snemma um morgunin, þannig að það er allt í lagi með hana. Engin orð eru til að lýsa svona hrylllingi.

fimmtudagur, mars 04, 2004

SOS

Nei thetta er ekki neydarkall heldur skrifa eg ykkur nuna fra SOS barnathorpinu a Filippeyjum, nanar til tekid i Manila, hofudborginni. Tetta er ekki buid ad vera neitt annad heldur en algjor og yndisleg snilld fra toppi til taar. Ad vera herna med ollum tessum krokkum er algjorlega frabaert og eg vildi ad eg gaeti verid herna lengur. Svo mikid er allaveganna vist ad eg mun potttett taka tatt i einhverju svona aftur, i hvada formi tad mun enda tad veit eg ekki en tad verdur bara ad koma i ljos.

Vildi bara lata alla vita ad eg er ekki horfin af yfirbordi jardarinnar, skemmti mer konunglega og mun reyna ad skrifa nakvaema lysingu a tessu ollu saman tegar eg er aftur komin til Hong Kong, vonandi hef eg tima...