Júróvision
Horfði á framlag okkar Íslendinga til Júróvision í dag og verð að segja að ég er ekki beint hoppandi af gleði. Hvenær ætlum við að taka einhverja áhættu? Senda Botnleðju eða tvo gamla kalla með kassagítar eins og Danir gerðu, og þeir unnu. Já já, ég veit að við sendum Pál Óskar með stelpum í sadó/masókista búningum...Versta var að þetta lag er alltof amerískt í alla staði. Var ég sú eina sem hugsaði um Toxic með Britney Spears? Held að það sé einhver bútur sem var mjög svipaður. Talandi um samlíkingar ég hugsaði líka um Grikkjan í magabolnum síðan í fyrra því að algjörlega út úr kú í miðju laginu er fáránlegt dansatriði sem bara virkar alls ekki.
Miklu skemmtilegra að horfa á Spaugstofuna eftir á. Hélt að ég myndi drepast úr hlátri þegar þeir tóku Gísla Martein og fóru síðan í gegnum Júróvisionlöginn, fannst reyndar að þeir hefðu getað gert meira grín af Sjúbbídú. Það er án efa versta lag sem hefur nokkurn tímann verið sent frá Íslandi í keppnina. Ah, kemst enn ekki yfir það hvað ég er glöð að fá Spaugstofuna hingað. Svo margir margir góðir punktar. En verð að viðurkenna að grínið þeirra um lagið hans Páls er alltaf jafn ógeðslegt. Ugh, Pálmi, Kalli og allir þeir í þröngum leðurnærfötum fyrir konur.....ekki gott. En þrátt fyrir alla mína gagnrýni þá læðst samt að mér sá lúmski grunur að við gætum átt séns í keppnina, Júróvision er ekki beint fræg fyrir gæði. Er samt svolítið hrædd við þá staðreynd að lagið vantar sama kraft og fyrra lagið hennar Selmu.
Bestu fréttirnar eru þær að eftir þriggja ára fjarveru frá Júróvision verð ég loksins heima til að horfa. FRÁBÆRT! Síðast þegar það gerðist var það held ég í útskriftinni hennar Hörpu...er það rétt? Held það. Síðasta ár horfðum ég og Nils á mjög slitrótta útsendingu á netinu klukkan þrjú að nóttu í tölvunni hans Nils. Enginn annar virstist hafa minnstan áhuga. Skrítið. Ah verð að bæta við einu: Hvað er málið að sína ekki frá þegar Michael Flatley og co komu á svið í Írlandi, uppruna Riverdance? Man ennþá eftir að hafa horft á það. Þvílík snilld. Allir upprifjunarþættir um Júróvision ættu að vera skildugir til að hafa klippuna.
Búin að vera ótrúlega dugleg í dag. Dressaði mig smá upp. Tveir bómullarbolir, takk mamma fyrir að stilla þetta inn, og nýjar buxur. Verð að koma vel fyrir í Norge ekki satt? Bara vika eftir af skólanum og ég get ekki beðið að fara til Noregs. Hrikalega verður gaman.
Tónninn: Chocolate - Snow Patrol