mánudagur, maí 29, 2006

Vespuvandræði

Djöfull eru vespurnar stórar hér í Noregi. Á síðustu tveimur dögum hef ég lent í tveim árásum, einni í sjónvarpsherberginu og einni í vinnunni. Heyrði suðið í þeim með heyrnatól öskrandi í eyrunum á mér. Er ekkert sérstaklega hræddi við skordýrakvikindin en þessar týpur meiga alveg hverfa af jörðinni fyrir mér. Sjæse.

Annars er það að frétta að fyrsti frídagurinn minn er á morgun, og mig vantar svefn. Það er eina planið fyrir morgundaginn: Sofa. Jah kannski lesa, er komin á svaka roll með lestur yndisbókmennta, varla yndisbókmenntir....búin að lesa Seducing Sybilla (þvílík hörmung) og Omen IV (ennþá meiri hörmung). En er að laga þetta allt saman með að taka fram old faithful: Michael Connelly sem er algjör krimmasnillingur.

Allt gengur vel í vinnunni fyrir utan að hendurnar eru algjörlega komnar í hakk. Skúra, skrúbba og þrífa fer ekkert sérstaklega vel með þær. Er komin með sár á hnúanna. Og hver segjir að ég geti ekki þrifið? Ah já, það var ég. Anyhoo, mestur tíminn hefur farið í að þrífa herbergin sem er fínt að dunda sér við þar sem ég er mest að vinna ein, hef ekkert á móti því. Hlusta bara á MP3 spilarann og læt the good times roll.

Ah, ætla að fara byrja frídaginn minn. Skreppa niður í búð (sem er loksins opin, er lokuð á sunnudögum, skrifa meira um það síðar) kaupa vistir (aka. bjórdós (ir)) og halda heim á leið. By the way: Hvernig eldar maður hrísgrjón?

Bókin: Michael Connelly - The Black Echo
Lagið: Jeeves and Wooster þemalagið, ég veit að þið munið eftir því....du du du dudurudu, svona thirties style
Þátturinn: CSI, var að heyra alveg massa spoiler fyrir 6 seríu, all is good.
Myndin: Secretary, langar alveg svakalega til að horfa á hana. Hilarious.
Tilvitnunin:

[Mr. Grey explains to Lee why he's firing her]
E. Edward Grey: It's your behavior.
Lee: What about my behavior?
E. Edward Grey: It's very bad.

- Secretary

laugardagur, maí 27, 2006

Hreinlætissérfræðingurinn Sigríður Jónsdóttir (cleaning the world)

Hver hefði haldið að ég myndi einhvertímann fá borgað fyrir að þrífa? Ekki ég. Er algjörlega uppgefin. Hef verið að fara sofa kl. 9-10 á kvöldin. Ég man ekki hvenær það gerðist síðast. Balestrand er snilld, lítil snilld en samt snilld. Búðunum lokar klukkan sex, og eru ekki opnar á sunnudögum, það er ein bensínstöð tvær litlar búðir og ENGINN pöbb. Vonbrigðin sem ég varð fyrir þegar þessu var deilt með mér eru ólýsanleg. Enginn pöbb. Reyndar er hótelbar á Kvikne's en hann er ekki mikið notaður af starfsfólki að mér skilst. Ó vell, ég reyni að lifa.

Herbergið mitt er mjög vel staðsett EFST Á RISABREKKU. Tekur mig um hálftíma að dröslast uppeftir. En um 5 mínútur að hjóla niður eftir. Herbergið sjálft er mjög kósí, kom þarna fyrst þannig að ég stal öllum bestu húsgögnunum og setti þau í mitt herbergi. Fyrstur kemur fyrstu fær. Law of the jungle go allt það. Er með ótrúlegt útsýni yfir fjörðinn og sef með gluggan opinn á nóttunni til þess að fá hreina loftið inn.

Vinnan gengur vel en er oftast algjörlega uppgefin eins og núna. Púff, held að leiðin liggi heim á leið. Drösla hjólinu mínu upp brekkuna og borða pestópasta sem ég eldaði í gær, ha! sko, ég elda og þríf. Hver hefði haldið?

Tónlistin: Orson - No Tomorrow
Bókin: Seducing Sybilla (algjör húmor, rauða serían meets 19th century)
Kvikmyndin: Engin í bili, hef ekkert séð
Sjónvarpsþátturinn: Criminal Minds, maðurinn frá Chicago Hope bjargar deginum
Staðurinn: Balestrand

miðvikudagur, maí 10, 2006

Betra er seint...

Jæja, auðvitað ákveð ég að blogga viku áður en ég kem heim. Svoleiðis er ég bara, og þannig verður það að vera. Margar eru þær nú tilkynningarnar en nýjustu fréttirnar er að ég er komin með íbúð fyrir næsta vetur sem er algjört yndi. 49 Lauderdale Street. Takk fyrir púnktur. Endilega skokkið á http://www.streetmap.co.uk , skellið þessari línu inn og glöggvið ykkur aðeins á þessu öllu saman. Er á jarðhæð, sem betur fer, flottur gangur (rauður), gamaldags parket, flott eldhús með útskýni á garðinn bakvið, smá skiki fyrir framan sem gott er að sitja á heitum dögum eins og þessum (20 stig í dag, I kid you not, algjör steikindi) og falleg herbergi. Þetta þýðir einfaldlega að flutningar hefjast í þessari viku, ooohhh hvað ég nenni því ekki. Það eina sem er slæmt við að vera háður bóka- og kvikmyndakaupum er að flytja þetta drasl. Æji, ég meinti þetta ekki.... verð að biðja bókanna afsökunnar, þetta var bara smá pun. Bý með fjórum stelpum...þekki reyndar bara tvær þeirra, Ella og Nadine. Eru báðar mjög fínar og get lofað því að hreinlætið verður aðeins betra á næsta ári. Takið eftir því að ég segji "aðeins".

Annars er þetta ár fljótlega á enda. Trúi því varla. Hefur hlupið áfram eins og kanína með eldflaug á bakinu, það er frekar hratt. Tvö afmæli um helgina, FA úrslitaleikurinn í næstu viku og próflok. Svo inn á milli verð ég að pakka, kveðja fólk og fleira og fleira. Prófin hafa gengið ágætlega en það var rosalega mikið að lesa fyrir South Asian Studies en mjög áhugavert, t.d. um vændi í Indlandi. Það er óviðunnandi hversu margar konur geta ekki séð fyrir sér og sínum nema selja sig.

Oh, ég nenni ekki að fá mér að borða en það verður víst að gerast. Ætla að fara sitja úti í steikjandi hitanum og borða samloku.

Lagið: Nightswimming - REM
Vefsíðan: http://www.10000tw.blogspot.is , loksins er íslensk ljóðlist að takast á flug
Afmælisbarnið: Fred Astaire
Bíómyndin: Flying Down To Rio
Sjónvarpsþátturinn: Extras, ó snilldin, ó snilldin
Tilvitnunin:

Patrick Stewart: I will "Make It So."
[blank look from Andy]
Patrick Stewart: You've seen "Star Trek: The Next Generation?"
Andy Millman: I haven't, no.
Patrick Stewart: Why? Your wife won't let you have it on?
Andy Millman: I'm not married.
Patrick Stewart: Oh, your girlfriend then?
Andy Millman: I haven't got a girlfriend either. I live alone.
Patrick Stewart: You're not married, you haven't got a girlfriend... and you've never watched "Star Trek?" Andy Millman: No.
Patrick Stewart: Good Lord...

- Extras

Patrick Stewart: "But it's too late. Becuase I've seen everything."

sunnudagur, maí 07, 2006

"I would like to see a world in which the means for a dignified life are available to all human beings equally, where the polity and economy are decentralized so that people have greater control over their own lives, where the diversity within and among groups and individuals is respected, and where tolerance and equality of rights and responsibilities are fostered at all levels. I believe in a non-authoritarian politics of consensus and non-violence and my immediate political goals include: working to ensure the survival needs of all, especially of vulnerable groups; working for the accountability of government to the citizens and minimal state control over people's lives; ensuring social and political space to imnority groups for the evolution of their identities; and moving towards the lessening of economic disparities. A primary motive in my life is working for women's equality and freedom in all areas of life."

- Madhu Kishwar

Er þetta ekki málið? Einfalt er það ekki, en algjörlega þess virði.