miðvikudagur, janúar 31, 2007

Stephen Fry, Emma Thompson og Þórarinn Eldjárn.

Það eru ekki margir sem eiga skilið nafnsbótina 'meistarar' eins og Þórarinn Eldjárn réttilega setur fram á vefsíðunni sinni, sérstaklega í heimi þar sem fólk eins og París Hilton og Victoría Beckham eru heimsþekkt nöfn. En þeir (meistararnir) eru ennþá til og mæli ég með að þetta hugtak verið stækkað út fyrir listaheiminn til þess að innihalda fólk líkt og Vigdísi Finnbogadóttur. Þórarinn á einnig skilið að vera þekktur sem Meistari Þórarinn, ekkert minna. En ég vildi einnig vekja athygli á tveimur öðrum sönnum meisturumm: Stephen Fry (leikari, leikstjóri, rithöfundur og spekingur mikill) og Emma Thompson (guð). Þessar hugleiðingar leiða mig að símtali sem ég átti í gær, svakalegu símtali. Þar sem Harpa benti mér á að þessir tveir síðarnefndu einstaklingar væru á leið til Íslands. Jæja, ekkert mál. Ég hef upplýsingar um að frú Thompson hefur fyrr á tímumm komið til Íslands, allaveganna lent á flugvellinum (og ég missti af henni). Ég get alveg höndlað svoleiðis upplýsingar (þó að ég sé ennþá bitur vegna komu Emmu þar sem ég var að vinna á flugvellinum þetta sumar og var í FRÍI þennan dag, kom í vinnu daginn eftir: "Æji, það var einhver ensk leikona sem kom í geng...æji, man ekki hvað hún heitir, eitthvað Emma..." I say no more).

En þau eru ekki bara að koma til Íslands, nei nei. Þau eru að fara halda handritanámskeið í Hvalfirðinum. Ha, heyri ég ykkur segja, það getur ekki verið. Ó jú! Þetta var í fjandas Fréttablaðinu í gær! Þau eru að koma til Íslands að halda stórt handritanámskeð sem hefur verið nefnt Working Week in Iceland, eða Vinnuvika á Íslandi. Vitiði hvað, ég er enn með gæsahúð. Ég verð, ég endurtek, ég verð að fara á þetta námskeið. Mér er sama hvað ég þarf að gera, sama hvaða rass ég verð að kyssa. Ég verð að komast. En með þessum hugleiðingum dettur mér í hug dæmi. Mér dettur í hug viss ballettsýning sem haldin var á Íslandi fyrir nokkrum árum með San Fransisco Ballettnum, sem stjórnað var og er af Helga Tómassyni. Þetta var sannkallaður stórviðburður á Íslandi í öllum skylningi og var hinn almenni borgari gríðarlega spenntur að fara (sem er mikið afrek fyrir ballettsýningu), sérstaklega mamma mín. Hringdi fólk í miðasöluna og beið í röðum. Þegar kom að sýningunni var það greinilegt að þessi viðburður var bara ætlaður "vissu heldra fólki" eg. þingmönnum, viðskiptamönnum og listasnobbliði (plús viðhengjunum þeirra). Ég er enn reið, bálreið vegna þessa. Hver á meira skilið að fara á svona sýningu, ég bara spyr: Mamma, sem hefur fylgst með Helga í áraTUGI, eða einhver þingmaður út í bæ sem mun örruglega drepast úr leiðindum, drekka of mikið og sofna áður en sýningin er hálfnuð. Sem betur fer fær mamma uppreisn æru því að flokkurinn er aftur á leið til landsins og núna með fleiri sýningar í farteskinu, hún er komin með miða.

Púnkturinn með þessu öllu saman er að benda á þá hættu sem kemur með þessu námskeiði. Að berjast fyrir því að elíta hins íslenska listaheims fái ekki forgang, eða eingang (var að búa til orð), að þessum markverða viðburði. Hver á frekar skilið að fara, ég bara spyr: Friðrik Þór sem er nú þegar búinn að setja sitt mark á listaheim Íslands, eða ólærður handritahöfundur sem hefur ekki enn fengið sitt tækifæri (og má ég bæta við, það þarf ekkert sérstaklega að vera ég). Held að jafnan sé mjög einföld.

Tónlistin: Bajofondo Tango Club
Bókin: The End of The Affair - Graham Greene
Þátturinn: Grey's Anatomy
Vefsíðan: http://theld.blog.is/blog/theld/

föstudagur, janúar 26, 2007

Niles&C.C.
The nanny. (There's a double meaning in that)

...vitiði hvað, það er bara mest lítið að frétta héðan, nema bara hvað að ég er á hraðferð með að hreinlega drukna í vinnu, búin að eiga heima á bókasafninu alla vikuna, og ég mæli með því að þegar einhver af ykkur kemur næst í heimsókn þá er nauðsynlegt að ég taki ykkur í túr....segji bara sem svo að það er eins gott að það er ekki hægt að opna glugga á þessum kassa dauðans því þá myndi rigna nemendum, lets leave it at that.

Tónlist: Nina Simone - Four Women
Sjónvarp: Star Trek The Next Generation (hvernir er hægt að horfa ekki á þessa þætti, tvö orð: Patrick Stewart)
Bókin: Seven Theories of Religion - Pals
Vídjóið: Nostalgíutripp dauðans, see above!

laugardagur, janúar 20, 2007

Bill Bailey - Love Song

...ef að hann bara myndi koma og syngja þetta fyrir utan gluggan hjá mér.... "the deer, now blinded, stumbles into a ravine"

fimmtudagur, janúar 18, 2007

....nýja árið byrjar skemmtilega með hjólaslysi í Edinborg

...stundum vildi ég óska þess að japanskar sveðjur væru gerðar löglegar, einnig að höggva mætti af eitthvað sem fólki þætti vænt um (jafnvel þó að það væru ekki líkamspartar, en það yrði samt fínt)...kannski bara mynd af hundinum þeirra eða eitthvað í þá áttina. Var á rölti niður í skóla í dag og var að lalla yfir götuna. Á milli götunar og gangstéttarinnar var ógurlegur pollur, og ég í strigaskóm. Ákvað í sakleysi mínu að labba löngu leiðina á götunni. Er nýstigin á hana þegar mannhelvíti á hjóli þeysist framhjá mér og skilur eftir sig þessi fallegur orð: "What are you doing!? You are walking in the middle of the street!" Vill benda á það að allaveganna helmingurinn af þessari setningu er kolröng, ég var ekki að labba á miðri götunni og oftast veit ég svona nokkurn veginn hvað ég er að gera. Ef að ég gæti bara verið róbotinn frá Terminator 2, ég hefði hlupið á eftir honum og kennt honum liquid lexíu!

Annars, fyrir utan fífl á hjólum, er frábært að vera komin til bara og mun deila fleiri sögum á næstunni. Núna hef ég bara 8 mín til að klára þetta blogg og síðan slökknar á tölvunum á bókasafninu, enn huggulegt af þeim.

Tónlistinn: Ray Lamontage - Trouble
Bíómyndin: Dylan Moran - Like, totally...
Bókin: Getting Even - Woody Allen
Manneskjan: Fanney! Til hamingju með afmælið á sunnudaginn!