Gleði
Fannst vera kominn algjör tími á það að skrifa smá línu um síðustu daga. Svona til að byrja með verður að segjast að þetta er ekki búið að vera neitt annað nema snilld, horft á bíómyndir, dansað, borðað, drukkið og spjall! Byrjaði á fimmtudeginum að ég og Nils fórum á bíómyndafyllerí. Endaði með því að kaupa alltof margar bíómyndir, ef það er þá hægt. Fórum síðan út að borða á klikkuðum ítölskum stað með Mariu frá Danmörku, sem var líka að útskrifast. Kvöldið endaði síðan á áströlskum djassbar þar sem var dansað og drukkið langt fram á nótt. Hápunktur kvöldins var þegar dansaður var trylltur Charleston! Í öðru sæti, naumlega þau, er þegar þeir spiluðu New York, New York með vini mínum honum Frank Sinatra.
Föstudeginum var eytt í algjörri leti, horft á bíómyndir og undrun á því að vera búin, laugardagurinn var mjög svo svipaður nema hvað við enduðum aftur á Ned Kelly's (djassbarnum) fram á nótt þar sem var auðvitað mikið fjör.
Á sunnudeginum rúllaði ég framúr um klukkan hálf tólf og þá var ákveðið að fara í bíó, svona á undan því að fara í mat með umsjónahópnum mínum (alltaf gott að fá frían mat). Fór á
The Eternal Sunshine of the Spotless Mind og verð að segja að ég hef ekki séð betri mynd í langan tíma. Var með tárin í augunum hálfa myndina, var virkilega kröftug. Fjallaði um mikilvægi mynninga, hvort sem þær eru slæmar eða góðar. Finnst það passa vel við Li Po Chun. Þó svo að það séu margar slæmar mynningar tengdar við þennan stað þá eru þær alveg jafn mikils virði og þær góðu, gera þær góðu jafnvel enn betri.
En sunnudagurinn komst ekki í hálfkvist við mánudaginn: ÉG SÁ
MY FAIR LADY Á STÓRUM SKJÁ!! Mikill draumur hjá mér að sjá klassískan söngleik á þann máta. Sver að ég andaði varla í þá þrjá tíma sem myndin var. Alveg æðisleg í alla staði og verð verð verð að gera þetta aftur síðar. Fór með Tessu og Mariu, sem eru alveg jafn veikar og ég fyrir söngleikjum þannig að þetta var mikið fjör.
Dagurinn í dag var frekar undarlegur þar sem ég eyddu meirihlutanum af honum að bíða eftir Nils þar sem hann var í læknisskoðun. Tókst að skadda öxlina á sér, datt. Hún er smábrotin en ekkert stórslys, þarf bara að taka það rólega (sem er reyndar svolítið slæmt því að hann er að fara til Kína í næstu viku). Svo undarleg Heilsubæli (heilsugæslustöðvar) hérna. Allt er þetta í háhýsum á 15du hæð einhverstaðar niðri í bæ. Voðalega skrýtið að vera þarna inni.
Svo á morgun er barasta verslunarferð með Nils. Vesen, þarf að kaupa mér einhvern kjól fyrir útskriftina. Ég þoli ekki að versla mér fín föt!!! Tekur svo langan tíma.... en oh jæja, það verður að gerast. Verður betra en vanalega því að ég blanda því við að kaupa gjafir fyrir ykkur liðið heima, he he he.
Á þessum tíma í næstu viku verð ég komið heim, viljiði pæla!?