miðvikudagur, apríl 28, 2004

smá hugleiðing

...það jafnast fátt á við lyktina af blautu grasi...nema kannski nýslegið gras... örsjaldan finn ég aðra hvora lyktina hérna í Hong Kong en þegar það gerist þá er dagurinn aðeins betri....
Sorg og gleði


Það er svo rosalega freistandi að bölva allrosalega núna en ég skal hlýfa ykkur. ANDSKOTANS HELVÍTIS HELVÍTI! Fyrirgefið, ég gat ekki haldið í mér. Eina stundina held ég að ekki einungis muni ég eyða sumrinu með Brinu heldur einnig að hún fari að vinna með mér í Fríhöfninni. Næstu stundina er hún komin með herbergi í Þýskalandi, er verið að redda henni vinnu og hún verður farin áður en ég kem heim! Er þetta eðlilegt? Ég hef varla séð hana í fjögur ár eða svo og við erum kornungar. Þetta er bara ekki sanngjarnt.... jæja, það þýðir ekki að gráta Birnu bónda heldur bara að safna liði, ræna henni og halda á Íslandi!

En ofan á þetta koma mjög góðar fréttir. Er loksins búin að ákveða nr. 2 skólann ef svo ske kynni að ég kæmist ekki inn í Oxford á endanum: Edinborgarháskóla. Valið stóð á milli LSE og Edinborgar. Á endanum, vegna margra atriða, komst ég að því að seinni kosturinn var algjörlega kjörinn. Þannig að ef að þið náið ekki að heimsækja mig í Oxford þá er það ekkert verra að fara í helgarferð til Edinborgar;)

sunnudagur, apríl 25, 2004

Hinn Truflaði Tim

Sankaði að mér nokkrum myndum í dag. Nokkrar af þeim var frá litla leikritinu sem við settum saman fyrir síðasta daginn. Í því leikriti var ég með lítið hlutverk, maður sem heitir Tim og er leiklistarsérfræðingur. Af mörgum ástæðum, sem er ekki hægt að segja frá með því að skrifa það, var ég æst í að fá að leika hann. Án þess að hafa þetta mikið lengra þá mæli ég með að þið kíkið á þessar aukamyndir í SÍÐASTI DAGURINN möppunni og minnið mig á að segja frá þessum 'einstaka' manni þegar ég kem heim.

This is the Eastern way/This is the Western way

ps. Ég keypti málverk í dag. Kostaði mig 2000 krónur.

laugardagur, apríl 24, 2004

"Tilviljanir" eru ekki til

Fannst meira til í landinu heldur en það sem það á að segja um mig sem persónu. Ég meina, er maður kannski ekki á leiðinni að læra fornleyfafræði;) Endilega skellið ykkur á þetta og látið mig vita hvað kom út úr þessu.




You're Egypt!

Curator of ancient mystical secrets, your life on the surface is fairly
typical these days.  Though you are in denial about more things than most people.
 Nevertheless, you're trying to convince people that you're safe despite your more
volatile and unstable times that seem to be behind you.  You like cats a whole lot.
 You'd probably really appreciate The Blue
Pyramid.

Take
the Country Quiz at the href="http://bluepyramid.org">Blue Pyramid

föstudagur, apríl 23, 2004

Hurðinni lokað

Þegar ég lokaði hurðinni á íbúðinni hans Maurice í gær þá skolaðist yfir mig þessi endalausa gleði: Ég var búin með leiklist. Það voru bara ekki til orð og lá við að ég valhoppaði á ganginum, sem ég og reyndar gerði síðar meir með öðrum leiklistarnemum. Ég hef mjög blendnar tilfinningar til þess að vera búin með þetta. Eins hörmulegt og stressandi eins og þessi áfangi var oft þá var stundum svo gaman að það var ekkert betra til í þessum skóla. Þetta er búið...

Nú er bara að fara á fullt með að læra undir próf, þó fyrr hefði verið...

Fannst þetta komment alveg einstakt. Langt síðan ég sá svona gott quote í blaði, og auðvitað er það Guardian.

"Violence creates violence," said Shaker Muhawesh, the managing editor of the Sunni Alsaah newspaper, yesterday. - Tekið af Guardian

þriðjudagur, apríl 20, 2004

Dugnaðurinn alveg að fara með mig

Ah, þvílík frelsun að vera komin með internetið í gang. Búið að græða týnda líkamspartinn aftur á! Var svo fáránlega dugleg að skella nokkrum myndum frá síðasta skóladeginum upp á netið. Endilega kíkið á og kommentið.

sunnudagur, apríl 18, 2004

Algjort internetleysi

Bara svona til ad lata alla vita ad eg er a lifi. Svo virdist sem eitthvad hafi varid urskeidis med internetid a ollu svaedinu sem eg by a, Shatin. Hef ekki hugmynd hvenaer eg kemst i stodugt internetsamband og takka internetgudunum fyrir ad mer tokst ad smygla mer inn a bokasafninu. Mer finnst eins og tad vanti likamspart ad hafa ekki netid....

laugardagur, apríl 17, 2004

Ps

auðvitað gleymdi ég einu aðalatriðinu. Mamma ég fékk pakkann frá þér í gær. Þegar þú sendir nammi þá ertu ekkert að senda neitt smotteí! Síðast en alls ekki síst, eiginlega bara fyrst, fékk ég stúdentahúfunda mína! Mine it's all mine!
Hinn frábæri dagur (Last day of Compulsorary classes.)

Vitið þið, eins væmið og það hljómar, þá væri það kannski betra að segja 'Hinn fullkomni dagur' því að dagurinn í gær var mjög nálægt því að vera það. Svona til að byrja með þá var þetta síðasti kennsludagurinn í skólanum og það er hefð fyrir því, eins og t.d. í FS, að útskriftarnemendurnir dressi sig upp. Ja, það var ekki beint þema hjá okkur en það var samt of skemmtilegt. Stelpurnar klæddust jakka, skyrtu og bindi en síðan var bætt við stuttbuxum og strigaskóm. Strákarnir fengu aðeins erfiðari verkefni: Drag. En það er samt ekki byrjunin á sögunni, heldur byrjar hún kvöldið áður. Leiklistarhópurinn ákvað og hittast til að böggla saman smá leikþætti til að sýna skólanum á morgun. Það var svo gaman að spjalla við alla saman. Ótrúlegt hvað þessi hópur er góður. Sátum í klukkutíma og rifjuðum upp allt það sem hafði gerst í leiklist síðustu tvö árin. Eins erfið og þau hafa verið eru sum atvik sem eru of fyndin - "You have to react. But don't react." Mjög svo mikilvægar leiðbeiningar frá Maurice.

Þegar ég hafði dregið sjálfan mig fram úr rúmminu, klætt mig í kostúmið fór ég upp í A-block að hitta alla. Það var ótrúleg sýn. Svona fyrir það fyrsta hafði Nils ákveðið að taka valkyrjuna kverkataki og var klæddur í hefðbundið svart norskt pils og tekið tvo plast hjálma og búið til "stál brjóstahaldara." Ég hélt að ég yrði ekki eldri. Mætti fleiri og fleiri karlmönnum sem voru hreint út sagt óborganlegri. Reyndar er svolítið sorglegt og pirrandi að segja frá því að ég komst að þeirri niðurstöðu að alltof margir af þeim sem ég sá litu betur út í pilsi heldur en ég. Ekki beint mikið egóbúst þar, en nógu fyndið svo að ég get alveg fyrirgefði þeim. Leikritið heppnaðist síðan stórkostlega vel, fólk hreinlega missti sig vegna hláturs. Maurice var líka skemmt, hann tók þessum skotum ekkert alltof illa. Ég og Vincent ákváðum síðan svona spontaniously að herma eftir Ming. Ó, það var svo fyndið. Vincent er snillingur í að herma eftir fólki. Heyrði það síðan seinna að Ming hafi ekki stokkið bros á vör. Gott.

Var bara í tveimur tímum í gær og báðir voru frekar léttir og löðurmannslegir. Sátum og spjölluðum í leiklist og borðuðum kökur í náttúrufræði. Eftir að síðasti tíminn var búinn hittust allir annars árs nemarnir við sundlaugina. Það er hefð fyrir því að þeir hendi sér allir ofan í, ennþá í fötunum. Þegar klukkan var hálf tvö hentu um 80 manns sér ofan í laugina þar sem við bustluðum lengi vel. Úff hvað það er erfitt að synda í háum sokkum. Ég og Nils hentumst síðan niður í bæ þar sem við sáum 'Japanese Girls at the Harbor' Þetta er þögul Japönsk mynd og var hún barasta nokkuð mögnuð. Skemmtilegt var líka að það var live tónlist með, reyndar var hún ekkert alltof góð en var samt gott að hafa.

Við fórum síðan aftur í skólann þar sem síðasta kaffihúsakvöldið var. Þemað þetta kvöld var 70s og ég henti mér í hippabúningin. Var reyndar svolítið erfitt að vera þarna því að ég skildi þá að þetta var í síðasta skiptið sem haldið verður kaffikvöld í ár. Rosalega skrýtin tilfinning en gaman samt. Eftir að hafa sungið og trallað í um klukkutíma fóru allir og skiptu um föt og héldu á leið til Lee On, blokkakverfi, inn í 7/11 búð þar sem keypt var smá alkóhól. Við sátumst síðan niður og spjölluðum. Var reyndar komin í rúmið á miðnætti en það breytti svo sem litlu. Það var bara svo hrikalega gaman í gær að ég kemst varla yfir það...

ps. Ég skal reyna að setja myndir á netið fljótlega, þið verðið að sjá valkyrjubúninginn hans Nils;)

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Stærðfræðilaus alsæla

Það var ekkert annað en alsæla sem þaut um líkamann þegar ég labbaði út úr síðasta stærðfræðitímanum mínum í gær. Ming vertu sæll og blessaður. Hann er einn af þeim fáu, ef einhverjum, í skólanum sem ég mun barasta ekki sakna neitt. Fer mjög illa í mig þegar talað er niður til mín, þessi maður var snillingur í því. Allaveganna, mér er ALVEG sama! Því að ég er búin í tíma hjá honum la la la..... enn því miður er síðasti sögutíminn á morgun, argh, Sylla er hreinlega alltof skemmtilegur til að vera ekki í tíma hjá.. ég meina hvar annars staðar getur maður fengið allar kynlífsögurnar úr mannkynsögunni? Ég bara spyr.

Í heimsfréttum er annars á dagskránnig að Jack Nicholson virðist hafa áhuga á því að kaupa kastala á Íslandi eins og kom fram á heimilinu mínu á internetinu:

Legendary actor Jack Nicholson is investigating the possibility of buying a second castle - this time in Iceland. The Oscar-winner recently pumped an Icelandic journalist for details on the island, including how cold it is and if there were any castles for sale. Nicholson has a strange new mission to buy castles all over the world, and recently purchased one in Britain. But the 66-year-old was disappointed to learn, "The Vikings didn't build any castles."

Gangi honum barasta vel með það.... en það væri ekkert leiðinlegt að fá hann í smá heimsókn;)

sunnudagur, apríl 11, 2004

PASSÍUSÁLMUR NR. 51

Sá þetta á einhverri bloggsíðunni og fannst alveg tilvalið að herma aðeins eftir og setja Passíusálm nr. 51 eftir Stein Steinarr upp á síðunni.

Passíusálmur nr. 51

Á Valhúsahæðinni
er verið að krossfesta mann.
Og fólkið kaupir sér far
með strætisvagninum
til þess að horfa á hann.

Það er sólskin og hiti,
og sjórinn er sléttur og blár.

Þetta er laglegur maður
með mikið enni
og mógult hár.

Og stúlka með sægræn augu
segir við mig:

Skyldi manninum ekki leiðast
að láta krossfesta sig?


Og talandi um ljóðskáld þá er mín að fara á ritunarnámskeið með þjóðskáldi Breta Andrew Motion núna á fimmtudaginn. Verð að viðurkenna að ég hafði ekki hugmynd um hver þessi maður er en eftir mikinn uppgröft á google er ég orðin aðeins vitrari. Hlakka til að sjá hvað kemur út úr þessu.
Þetta passar of vel

HASH(0x8a6fbac)
You enter the door .You see the higher being and
listen to what it says to you:
I have already been waiting for you.You ask
yourself why, dont you? Let me explain:
You should know that I am not the highest being I
am just one of the nine servants. And I am
sent to make you think about something but I am
not here to answer your questions. I can not
tell you too much but I will come again. So
listen what I have to say!
I am the higher being of confusion. I shall tell
you that you are stuck somewhere. There are
ways and you dont know which to take. And you
dont go on. But let me tell you its more worse
to do nothing than to make a mistake .From
mistakes you learn and make it better next time
but if you stop going on you stop to live and
this is a place between life and death.
Dont start to feel comfort at this place. There is
somebody fighting for you, if you open your
eyes you will recognize it!
Thus spoke the higher being of decision and now
wake up! If you want the higher beings to come
again please rate this quiz. It will may take
some time but I have to work hard. Messages are
also welcome!


~Visit the higher being in one of your dreams and listen what he says to you !!!WITH PICS!~
brought to you by Quizilla

laugardagur, apríl 10, 2004

Hann er fundinn í fjörunni

Enn neyðarlegt fyrir hann Björn en hann átti þetta alveg skilið.

föstudagur, apríl 09, 2004

Listinn

Elephant
The Dreamers
Travellers and Magicians
The Barbarian Invasions
Love in Thoughts
Power Trip
Japanese Girls at the Harbor
The Singing Detective
Not on the Lips
Goodbye, Dragon Inn

...þetta gerist varla betra...
Misheppnun í miðborginni

Ekki var þetta best heppnaðasti dagurinn í Hong Kong. Ákvað að fara með Nils niður í bæ þar sem hann ætlaði með tölvuna sína í viðgerð, er eitthvað slöpp greyjið. Ákváðum að taka rútuna í staðinn fyrir lestina út af því að það heppnaðist svo vel síðast. Mistök númer eitt. Föttuðum ekki alveg að það var frídagur í dag þannig að við lentum í hálftíma umferðarteppu sem er alveg hrikalegt í HK því að í rútunum eru sjónvörp sem spila ekkert nema auglýsingar. The horror...the horror... Jæja loksins komumst við niður í Mon Kok en þá uppgötvuðust mistök númer tvö: Nils hafði gleymt kvittuninni sinni þannig að góður möguleiki var á því að það yrði ekki litið á tölvuna í búðinni. En það breytti víst ekki miklu þegar við komumst að mistökum númer þrjú: Búðin sem við þurftum að fara í var ekki í Mon Kok heldur í Suam Shi Po, nokkrum lestarstöðvum í burtu. Þá gáfumst við endanlega upp og fengum okkur ís í staðinn. Ekki nóg með það heldur fórum við líka og keyptum fleiri miða á kvikmyndahátíðina hér í bæ, það væri synd að gera það ekki er svo svakalega ódýrt (um 200 krónur miðinn)... skrifa listann af myndunum sem ég er að fara sjá seinna...

og eitt svona spes fyrir Hörpu: Ég fann myndina Oscar í dag!!! Erum við að fara horfa á hana þegar ég kem heim? I think so! "You are an ox and a moron." Snilld í poka.

miðvikudagur, apríl 07, 2004

Útópían Ísland

"Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir jafnréttislög barn síns tíma." Rosalega er það nú gott að búa á Íslandi þar sem ég get verið alveg viss um að stjórnmálamennirnir séu heiðarlegir og hafi alltaf rétt fyrir sér...

mánudagur, apríl 05, 2004

Hringurinn þrengist

Síðustu dagarnir hafa vægast sagt verið frábærir. Allt hefur verið á rólegu nótunum. Lognið á undan prófstorminum. Er búin að fara fjórum sinnum út að borða þessa vikuna með mismunandi fólki. Fór með Caitlín frá Írlandi á ítalskan síðasta þriðjudag þar sem við ræddum um Oxford, þar sem við báðar komumst inn, og allt annað á milli himins og jarðar. Fór síðan með Héctor í bíó á The Passion of the Christ á fimmtudeginum og síðan á McDonalds á eftir. Á föstudaginn fékk Nils mig til að fara í bíó á Calender Grils og þar með "urðum" við að fara út að borða á kaffihúsi á undan. Laugardagurinn endaði síðan með því að slatti af fólki frá Norðurlöndunum enduðu á sama stað og ég og Caitlín fórum saman á. Þannig að ekki hefur þetta verið slæm vika fyrir magann svo mikið er víst.

Á sunnudeginum var challenge day þar sem UWC umsækjendur af Hong Kong svæðinu komu í skólann til að spreyta sig á nokkrum vel völdum þrautum, aðeins meira prógram heldur en kaffiviðtalið heima á Íslandi. Eyddi klukkutíma í að kenna krökkum nokkra íslenska frasa í tungumálakennslu. Íslenska hlýtur að vera fáránlegt tungumál til að læra.... allar beyjingarnar á orðunum... hér er stóll um stól.. og svo framvegis... hjálp, ekki gott að vera þau. Sunneva var líka að hjálpa mér og við ákváðum að gera þetta aðeins skemmtilegra með því að kenna þeim "höfuðherðarhnéogtær"... við sungum náttúrulega með eins og okkur er einum lagið, eða í þessu tilviki ólagið.

Verst var samt að heyra frá Héctor, en hann sá um að taka viðtal við hóp af nemendum, hvað margir hugsa einungis um að Li Po Chun sé stökkpallur í háskóla svo sem Harvard og Yale. Sorglegt að vita að þessir nemendur eigi eftir að komast inn í skólann bara út á fjölskyldusambönd, peninga og einkannir. UWC á að vera miklu meira heldur en þetta... ekki bara útungunarvél fyrir lögfræðinga og endurskoðendur, með fullri virðingu fyrir báðum starfsgreinum... vesen...

á enn eftir að skrifa umsögn um The Passion of the Christ en það mun ég gera seinna, klukkan er næstum hálf þrjú hérna og það er víst skóli á morgun... en morgundagurinn ber margt í skauti sér og þar ber hæst á bógi (er þetta orðatiltæki?) upphaf kvikmyndahátiðar í Hong Kong og ég læt mig auðvitað ekki vanta. Á morgun er það Elephant eftir Gus Van Sant, hann fékk leikstjóraverðlaun Cannes fyrir stykkið.

Ah, gleymdi næst um... titill þessa pistill tengist því að ég er mjög nálægt því að verða búin að ákveða framtíð mína í sambandi við háskólanám. Ég er orðin handákveðin að fara til Bretlands en það eina sem á eftir að ákveða er hvort að ég taki LSE eða Edinborg sem skóla númer tvö ef svo ske kynni að ég komist ekki inn í Oxford út af einkunnum.... þessi ákvörðun verður tekin í þessari viku.